Færsluflokkur: Bloggar

nýjustu fréttir

Jæja, þá er ég flutt úr Hraunbænum. Þegar maður flytur þá uppgvötar maður að maður á miklu meira dót en maður hélt. Alveg hreint ótrúlegt hvað maður getur sankað að sér. Fór einhverjar 4 ferðir á sorpu með drasl.

Er komin með íbúð sem ég fæ 10.júni og hún er upp á Kjalarnesi. Dáldið langt í burtu, en það reddastGrin

Svo er það bara Búlgaría eftir 9 daga W00t


Yndilsegur dagur

Búinn að vera frábær dagur, jafnvel þótt það hafi verið keyrt á mig....þið getið þá rétt ýmindað ykkur hvað þetta var góður dagurGrin

Já er búin að fá staðfestingu á því að ég sé að gera rétt, það eru nefnilega heilmiklar breytingar í gangiæði svona í daglegu lífi og svo bara í sjálfri mér. Kominn tími til að ég hætti að vorkenna mér og fari að lifa lífinu án þess að vera upp á aðra komin, bæði tilfinningalega og fjárhagslega.

 Allavega fæ svar á mánudaginn um íbúð og svo er bara Búlgaríu ferð framundan...allt að gerast. 


veit ekki afhverju

Veit ekki alveg afhverju ég er að byrja að blogga aftur, eftir dramað í kringum síðasta bloggið mitt. Maður kanski passar sig bara vel hvað maður skrifar og hvað maður lætur ósagt.

 

Var í grillveislu upp á Kjalarnesi í gær, með allri fjölskyldunni. Það var roslaega næs, borðaði á mig gat. Gabríel gisti upp frá. Þannig að ég kíkti í heimsókn til Péturs og Robyn en var svo ógeðslega þreytt að ég var komin heim um miðnætti og steinrotaðist.

Síðasta vika er búin að vera rosalega skrýtin og erfið, en það eru bjartari tímar framundan. Er á fullu í íbúðar leit. Ef einhver veit um íbúð til leigu á sangjörnu verði endilega láta mig vita.

Læt þetta gott heita í bili, verð að fara að ná í orminn minn upp á Kjalarnes.  


Um bloggið

Lovísa Lilja Vilhjálmsdóttir

Höfundur

Lovísa Lilja Vilhjálmsdóttir
Lovísa Lilja Vilhjálmsdóttir
Er 26 ára sjálfstæð móðir sem lifir lífinu til fulls
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband